Hvad er

Kaos, konur & kampavín - FKA-DK x MONDO KAOS

tor, 17. september 2026 · 17:00 — 19:00

Mondo Kaos, København · 85 kr.

Kaos, konur & kampavín - FKA-DK x MONDO KAOS — Mondo Kaos, København

Kaos, konur og kampavín - haustið hefst með Mondo Kaos ✨

FKA-DK heldur sinn fyrsta viðburð eftir sumarfrí fimmtudaginn 17. september, kl. 17-19, í retro versluninni Mondo Kaos á Frederiksborggade 31, 1360 København K. Hrafnhildur Halldórsdóttir, verslunarstjóri Mondo Kaos, tekur á móti okkur og kynnir búðina og hugmyndina á bak við hana. Með henni verða Ditte Charité Lindemose, eigandi verslunarinnar, og Harpa Hreinsdóttir, sem kom til liðs við fyrirtækið fyrr á árinu.

Mondo Kaos er vintage reproduction og multibrand verslun með eigið merki, Daisy Dapper. Þetta gefur tækifæri til að kíkja bak við tjöldin og kynnast konunum á bak við reksturinn - og auðvitað skoða úrvalið. Boðið verður upp á freyðivín á meðan við njótum samverunnar, og Mondo Kaos býður félagskonum upp á 25% afslátt á meðan viðburðinum stendur 🙌

📅 17. september ⏰ Kl. 17-19 📍 Mondo Kaos - Frederiksborggade 31, 1360 København K