Hvad er

Kaflaskil - Hugrekki til vaxtar

lør, 24. oktober 2026 · 09:30 — 21:00

Nordatlantens Brygge, København · 790 kr.

Kaflaskil - Hugrekki til vaxtar — Nordatlantens Brygge, København

Kaflaskil - Hugrekki til vaxtar er ráðstefna FKA-DK 2026, sem Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku heldur þann 24. október á Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn. Þetta er þriðja ráðstefna félagsins, og yfirskriftin snýst um hugrekki og það að stíga út fyrir þægindarammann - sem grunnforsendur persónulegs og faglegra vaxtar.

Á dagskrá eru fyrirlestrar og pallborðsumræður með fjórum ræðukonum: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (fyrrum ráðherra og þingmaður), Katrín Jakobsdóttir (fyrrum forsætisráðherra), Ragnhildur Þórðardóttir - Ragga nagli (sálfræðingur og fyrirlesari) og Steinunn Sara Helgudóttir (stofnandi Neurometa Therapeutics). Jana María Guðmundsdóttir, leik- og söngkona, flytur tónlist á milli dagskrárliða.

Í miðanum er innifalinn hádegismatur, kaffiveitingar og kvöldverður. FKA-DK er samfélag íslenskra kvenna í atvinnulífinu í Danmörku.